Það er kominn föstudagur og ekkert slæmt um það að segja

(þessi setning hljómar eins og ég sé þáttastjórnandi á FM...rosa hresst

)
Reyndar er veðrið ekkert spes en svona boltar eins og við látum það ekki á okkur fá. Vikan var ljómandi, fór inná ak með ernu, eydísi og öglu pálu prakkarapíu

þar sem ég var ekki í neinu verslunarstuði fékk ég að halda á stuttu stelpunni sem var góð æfing fyrir handleggina...body pump hvað?

Við þræddum göngugötuna og kíktum svo bæði á glerártorg og í hagkaup en það var einmitt þar sem það komst upp að erna jóna er alveg snar-dýrblind...já stelpan þekkir ekki kanínur frá kúm!
Við sóttum svo borgardrottninguna hana ínu á völlinn og brunuðum beint á greifann með hana. Stelpurnar gerðu ekki lítið grín af mér fyrir að hafa ekki farið á greifann í nokkur ár..!! þær þurftu nú varla að lyfta matseðlinum heldur blikkuðu bara næsta þjón og báðu um "það sama og venjulega"

ég aftur á móti barðist við gríðarlegan valkvíða sem endaði heldur illa...
í kvöld ætlar Svava a.k.a. the golden girl að bjóða nokkrum vel völdum í fansy pansy kvöldmáltíð en hún lofaði líka að taka fram sega-tölvuna sína! þetta mun annað hvort enda hörðum bardaga í sonic, villtum borðdönsum, eða bara veiðiferð í laxána...djammið hérna á hú er svo óútreiknanlegt þessa dagana
Á morgun er svo lokahóf völsungs á hótelinu og ég held bara hreinlega að allir bæjarbúar (svona nánast) ætli að hrista á sér rassinn við takta dj.lilju - maður kíkir á það

þarf reyndar að vinna á sunnudaginn, það er messukaffi fyrir fermingarbörn og foreldra svo ég verð þar og tek á móti famelíunni, þ.e.a.s. sonju sif og foreldrum, það myndi nú alveg detta af manni hausinn ef að strákarnir myndu bara mæta í messuna og kaffið!! pælið í því..það er bara verið að fara að ferma litlu systur mína í vor - bara eins og það hafi verið í gær þegar þessi litli skratti fæddist með ljósu krullurnar út í loftið

nú er þessi elska bara í únglingadeildinni , fer í kelduna og allar græjur!
skrítið líf
svona rétt í lokinni ætla ég að óska ykkur góðrar helgar og bið ykkur í guðanna bænum að ganga hægt um gleðinnar dyr
já og mér þykir rétt að minna á það að pósthúsið ER búið að FLYTJA og er núna sunnan við bílaleiguna - ef þú ert kominn að sláturhúsinu..þá ertu kominn of langt!

það hafa nefnilega ónefndir sést ráðvilltir á "gamla" pósthúsplaninu með pakka og bréf í höndum
won´t anybody find me..somebody to love?